12. Mannætukóngurinn Sam Altman Podcast By  cover art

12. Mannætukóngurinn Sam Altman

12. Mannætukóngurinn Sam Altman

Listen for free

View show details

Á næstu árum er óhjákvæmilegt að einhver muni þróa stórhættulega ofur-gervigreind. Það er spurning upp á líf og dauða hver það er sem muni stjórna þessari tækni. Sam Altman vill að við treystum honum fyrir því. Það eru þó ekki allir sammála því að stórhættulega ofur-gervigreindin sé óhjákvæmleg og finnst jafnvel önnur vandamál af völdum gervigreindar meira aðkallandi að leysa. Um þetta er fólk innan gervigreindargeirans ekki sammála.


Altman er kurteis, strákslegur og hefur sakleysislegt yfirbragð. Hann hefur á undanförnum árum orðið að andliti gervigreindarbyltingarinnar, hann er maðurinn á bakvið OpenAI og spjallmennið ChatGPT. Hann hefur verið kallaður mannætukóngurinn af læriföður sínum.


Efni sem við studdumst við við gerð þáttarins


Bækur

The Optimist: Sam Altman, OpenAI, and the Race to Invent the Future (2025) eftir Keach Hagey

Empire of AI (2025) eftir Karen Hao


Viðtöl

Dario Amodei hjá New York Times - https://www.youtube.com/watch?v=N5JDzS9MQYI&t=1671s

Sam Altman hjá Lex Fridman - https://www.youtube.com/watch?v=L_Guz73e6fw

Eilezer Yudkowsky hjá New York Times - https://www.youtube.com/watch?v=2Nn0-kAE5c0&t=1205s


Greinar og blogg

Blogg Sam Altman - https://blog.samaltman.com/2279512

Vefsíða OpenAI - https://openai.com/charter/

New Yorker grein um Sam Altman - https://www.newyorker.com/magazine/2026/04/13/sam-altman-may-control-our-future-can-he-be-trusted

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

No reviews yet