Episodes

  • 02: Undir Helgahnúk
    Mar 23 2026

    Undir Helgahnúk kom út árið 1924. Verkið skrifaði Halldór Laxness í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið. Skáldsagan er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar, sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer í framhaldi að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur.


    Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:


    https://www.facebook.com/groups/1247768283945537


    Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    1 hr and 2 mins
  • 01: Barn náttúrunnar
    Feb 20 2026
    Í þessum þætti ræðum fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelm Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    54 mins