Dauðasynd
Failed to add items
Add to Cart failed.
Add to Wish List failed.
Remove from wishlist failed.
Adding to library failed
Follow podcast failed
Unfollow podcast failed
-
Narrated by:
-
By:
Sumir mega eta blóð og hold Krists, sameinast honum, öðlast eilíft líf. Aðrir ekki. Í þessum þætti er leitast við að skilja hverjir það eru sem mega meðtaka altarissakramentið og hverjir ekki. Flókinn syndalisti kaþólsku kirkjunnar er skoðaður, sér í lagi tvö brot á trúarritningunni sem teljast til alvarlegra synda, annars vegar samkynhneigðir sem lifa „virku hinsegin lífi“ og hins vegar fráskildir sem komnir eru í ný sambönd.
Kaþólska kirkjan, á Íslandi sem og annars staðar, gerir sérstakan greinarmun á þeim sem hneigjast til samkynhneigðar og þeirra sem iðka hana. Samkynhneigðir mega sum sé meðtaka altarissakramentið, svo lengi sem þeir eiga sér ekki samkynja ástarlíf.
Jakob Rolland, prestur, kanslari og fjölmiðlafulltrúi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, útskýrir málið nánar. Hann segir að kirkjan sömuleiðis vonist til að samkynhneigðir breyti sér með tímanum og bætir við að hún veiti þeim aðstoð.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.