Meining Podcast By RÚV Hlaðvörp cover art

Meining

Meining

By: RÚV Hlaðvörp
Listen for free

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

RÚV Hlaðvörp
Philosophy Science Social Sciences Spirituality
Episodes
  • Jósefssystur
    Apr 13 2026

    Árið 1896 komu til landsins fjórar nunnur úr reglu St. Jósefs. „Þetta eru neyðarsveitir, svipað og ýmsar Rauða kross eða hjálparsveitir sem eru sendar til þróunarlanda í dag,“ eins og Ólafur H. Torfason orðaði það. Hann skráði á sínum tíma hundrað ára sögu systranna á Íslandi.

    Í þættinum heyrum við úr dagbókum Systur Clementiu eldri sem var í hópi þeirra fyrstu sem komu til landsins. St. Jósefssystur eru þekktar fyrir ýmis brautryðjendastörf í Reykjavík. Þær reistu m.a. fyrsta sjúkrahúsið með nútímasniði, gerðu fyrsta holræsið í borginni og veittu sjúklingum sínum hreint vatn úr brunni sem þær létu grafa. Í þættinum skoðum við tíma Jósefssystra hér á landi út frá áðurnefndri dagbók og viðtalsbrotum úr safni RÚV. Við sögu koma jarðskjálftar, bagalegar aðstæður Íslendinga fyrir og um aldamótin 1900, hnignun kaþólskra nunna á heimsvísu undanfarna hálfa öld og kynferðislegt ofbeldi presta á nunnum. Á síðustu tveimur áratugum hafa nunnur víðast hvar í heiminum stigið fram og greint frá kynferðislegu ofbeldi og misnotkun kaþólskra presta. Frásagnir þeirra varpa ljósi á vandamál sem enn er lítið rætt opinberlega.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    1 hr
  • Leikmenn
    Mar 30 2026

    „Að mínu áliti er kirkjan heilög. Þrátt fyrir að það séu til slæmir prestar, slæmir biskupar og það hafi verið mjög slæmir páfar í gegnum tíðina þá er kirkjan sjálf heilög. Ef hún væri það ekki, þá væri ég ekki í henni,’’ segir Jónas Sen, tónlistarmaður, gagnrýnandi og leikmaður í leikmannareglu Karmels í þætti dagsins.


    Í þættinum skoðum við leikmannareglunna nánar. Þegar talað er um leikmenn kaþólsku kirkjunar er átt við venjulegt kaþólskt fólk sem lifir sínu hefðbundna lífi utan kirkjunnar en kýs að fylgja andlegum reglum ákveðinna trúarreglna kirkjunnar. Hér á Íslandi finnum við leikmannareglu Karmels sem leikmenn eru vígðir í inn með formlegum hætti, fá brúnt herðaklæði í anda Karmelreglunnar og strengja ákveðin trúarleg heit. „Maður lofar að lifa í innri fátækt, ánetjast ekki auðum og völdum. Að reyna að vera í ákveðinni fjarlægð frá lífsgæðakapphlaupinu,“ segir Jónas um eitt af fornu loforðunum, en hann hefur verið í reglunni í rúman áratug.


    Rætt er við tvo leikmenn í reglunni, fyrirbæri eins og tíðabænir koma við sögu, einnig íslenskt-kaþólskt snjallsímaforrit, lesleiðbeiningar frá Róm og merkingarmyndun í kjölfar áfalla.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    58 mins
  • Karmel
    Mar 23 2026

    „Lífið er nógu þungt og því gott að hlæja vel,“ sagði ein karmelsystra árið 1957 í útvarpsviðtali. Karmelreglan er ein fárra höfuðreglna kaþólskrar trúar sem finnst hér á landi í dag. Á Karmelfjalli forðum hófst búseta einsetumanna sem bjuggu hver í sínum litla helli en komu daglega saman til bæna. Árið 1209 hafði hópurinn komið sér saman um að lifa samkvæmt skipulagðri reglu sem fékk heitið Karmel eftir fjallinu og eru fylgjendur hennar gjarnan kallaðir karmelítar.


    Í þættinum er skoðuð saga reglunnar og einsetuhefðin, Maríudýrkun og rík andleg bókmenntahefð sem hefur heillað marga utan veggja klaustranna. Við heyrum gömul og ný viðtöl við systur í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. „Þessar konur sem ævilangt hafa sagt skilið við ættland sitt og aðstandendur og flust til þessa fjarlæga eylands þar sem þær munu dvelja til hinstu stundar inniluktar gráum múrveggjum agaðar við sið löngu liðinna alda og fórna öllu því sem við hinir köllum lífshamingju fyrir trú sína,“ eins og Björn Th. Björnsson orðaði það í þætti sínum fyrir tæpum 70 árum. Teresa af Avíla kemur aftur við sögu í þessum þætti, Jóhannes af Krossi, Edith Stein, Teresa af Lisieux, Íslandsheimsókn Jóhannesar Páls páfa II, vefsíða karmelsystranna og ört vaxandi söfnuður kaþólskra í Asíu og Afríku.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    1 hr
No reviews yet