Sögur úr raunveruleikanum Podcast By RÚV Hlaðvörp cover art

Sögur úr raunveruleikanum

Sögur úr raunveruleikanum

By: RÚV Hlaðvörp
Listen for free

Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

RÚV Hlaðvörp
Biographies & Memoirs Politics & Government Social Sciences True Crime
Episodes
  • Að deyja í einsemd
    Apr 14 2026

    Þegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti.


    Einstaka sinnum gerist það að tæknideildin mætir á vettvang þar sem lík hefur legið lengi. Slíkt gerist sem betur fer sjaldan en árið 2025 fannst lögreglumönnum eins og það væri einhver breyting þar á. Þeir töldu sig koma að fleiri einstæðingum en áður.


    Rætt er við lögreglumennina Guðmund Þ. Tómasson og Ragnar Jónsson. Við heimsækjum Ingvar Stefánsson og Helenu Björk Magnúsdóttur hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og Emilíu Jónsdóttur félagsráðgjafa hjá Útfararstofu kirkjugarðanna.


    Umsjón: Þóra Tómasdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    41 mins
  • Krossfest: Föstudagurinn langi
    Apr 3 2026

    Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju?


    Viðmælendur:

    Ruben Enaje

    Prófessor Xiao Chua

    Pétur Guðmann Guðmannsson

    Hugo Goodson

    Michael Magee


    Lestur:

    Ruben Enaje: Björn Þór Sigbjörnsson

    Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson

    Hugo Goodson: Jóhannes Ólafsson

    Michael Magee: Atli Már Steinarsson


    Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    51 mins
  • Krossfest: Skírdagur
    Apr 2 2026

    Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa.

    Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum.

    Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu.


    Viðmælendur:

    Prófessor Xiao Chua

    Marj Einarsson

    Ruben Enaje


    Lestur:

    Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson

    Marj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir


    Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    49 mins
No reviews yet