Konungssinnar í Kísildal Podcast By RÚV Hlaðvörp cover art

Konungssinnar í Kísildal

Konungssinnar í Kísildal

By: RÚV Hlaðvörp
Listen for free

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í febrúar.

Frá því að hann tók við embætti forseta hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið.


Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar.


Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir.

Í þessum þáttum sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal.


Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

RÚV Hlaðvörp
Political Science Politics & Government Social Sciences
Episodes
  • 12. Mannætukóngurinn Sam Altman
    Apr 16 2026

    Á næstu árum er óhjákvæmilegt að einhver muni þróa stórhættulega ofur-gervigreind. Það er spurning upp á líf og dauða hver það er sem muni stjórna þessari tækni. Sam Altman vill að við treystum honum fyrir því. Það eru þó ekki allir sammála því að stórhættulega ofur-gervigreindin sé óhjákvæmleg og finnst jafnvel önnur vandamál af völdum gervigreindar meira aðkallandi að leysa. Um þetta er fólk innan gervigreindargeirans ekki sammála.


    Altman er kurteis, strákslegur og hefur sakleysislegt yfirbragð. Hann hefur á undanförnum árum orðið að andliti gervigreindarbyltingarinnar, hann er maðurinn á bakvið OpenAI og spjallmennið ChatGPT. Hann hefur verið kallaður mannætukóngurinn af læriföður sínum.


    Efni sem við studdumst við við gerð þáttarins


    Bækur

    The Optimist: Sam Altman, OpenAI, and the Race to Invent the Future (2025) eftir Keach Hagey

    Empire of AI (2025) eftir Karen Hao


    Viðtöl

    Dario Amodei hjá New York Times - https://www.youtube.com/watch?v=N5JDzS9MQYI&t=1671s

    Sam Altman hjá Lex Fridman - https://www.youtube.com/watch?v=L_Guz73e6fw

    Eilezer Yudkowsky hjá New York Times - https://www.youtube.com/watch?v=2Nn0-kAE5c0&t=1205s


    Greinar og blogg

    Blogg Sam Altman - https://blog.samaltman.com/2279512

    Vefsíða OpenAI - https://openai.com/charter/

    New Yorker grein um Sam Altman - https://www.newyorker.com/magazine/2026/04/13/sam-altman-may-control-our-future-can-he-be-trusted

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    54 mins
  • 11. Gönguskíðagarpurinn Dr. Alex Karp
    Apr 1 2026

    Hann er heimspekingur í Kísildal, en hann er ekki heimspekingur Kísildalsins. Þvert á móti þá sker hann sig úr og gerir í því að aðgreina sig frá öðrum tæknifyrirtækjum Kísildalsins.Við fjöllum um Alex Karp, framkvæmdastjóra Palantir. Áður en hann varð framkvæmdastjóri og síðar milljarðamæringur, þá var hann doktorsnemi í heimspeki við Goethe-háskóla í Frankfurt.


    Palantir er eitt umdeildasta fyrirtæki Bandaríkjanna í dag, enda tækni þess notuð af útlendingaeftirlitinu (ICE) til að finna innflytjendur sem stendur til að reka úr landi og til að finna heppilegustu skotmörkin í Íran. Karp sem talar um sig sem vinstrimann og hefur stutt Demókrataflokkinn í áratugi, hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir þáttöku fyrirtækisins í herskárri stefnu Donalds Trump.


    Það efni sem nýttist við gerð þáttarins var meðal annars eftirfarandi:


    Bækur:


    The Technological Republic: Hard Power, Soft Belief, and the Future of the West (2025) eftir Alexander C. Karp og Nicholas W. Zamiska

    The Philosopher in the Valley: Alex Karp, Palantir, and the Rise of the Surveillance State (2025) eftir Michael Steinberger


    Viðtöl:


    A16z - https://www.youtube.com/watch?v=Wj6ttdIeBnE&t=62s

    All In hlaðvarpið - https://www.youtube.com/watch?v=Y-IH7EVrBbQ

    Free Press - https://www.youtube.com/watch?v=QdqHf71Tep0

    New York Times https://www.youtube.com/watch?v=8i-ys9faa74


    Greinar


    Minningargrein Karp um Habermas https://www.politico.com/news/magazine/2026/03/20/karp-habermas-remembrance-00838398

    Rýnt í doktorsritgerð Karp https://www.boundary2.org/2020/07/moira-weigel-palantir-goes-to-the-frankfurt-school/

    Grein í The Guardian um gervigreind í stríði https://www.theguardian.com/news/2026/mar/26/ai-got-the-blame-for-the-iran-school-bombing-the-truth-is-far-more-worrying

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    53 mins
  • 10. Sæðisgjafinn Elon Musk
    Jun 5 2025

    Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn hans í DOGE, hagræðingahópnum, hafa staðið í síðastliðna 130 daga. Hvort þetta þýði að áhrif Musks fari minnkanndi í Hvíta Húsinu á eftir að koma í ljós. En fyrir hvað stendur hann, fyrir hverju berst hann og á hvað trúir hann? Hvernig tengist nýlenda á Mars börnunum 14?


    Efni sem var notað við gerð þáttarins:


    Ævisagan Elon Musk eftir Walter Isaacson (2023)


    Viðtöl við Elon Musk og fleira:


    Elon Musk: War, AI, Aliens, Politics, Physics, Video Games, and Humanity | Lex Fridman Podcast #400

    https://www.youtube.com/watch?v=JN3KPFbWCy8


    Elon Musk at Qatar Economic Forum

    https://www.youtube.com/watch?v=76nZJbiSTqQ


    Joe Rogan Experience #2281 - Elon Musk

    https://www.youtube.com/watch?v=sSOxPJD-VNo


    Elon Musk delivers SpaceX update on Starship, Mars goals and more at Starbase

    https://www.youtube.com/watch?v=0nMfW7T3rx4


    Í ljósi sögunnar:


    Ættir og ævi Elon Musk

    https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sch


    Elon Musk í Norður-Ameríku

    https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sci


    Annað efni:


    We Went To The Town Elon Musk Took Hostage

    https://www.youtube.com/watch?v=5cZEZoa8rW0


    The Tactics Elon Musk Uses to Manage His ‘Legion’ of Babies—and Their Mothers

    https://www.wsj.com/politics/elon-musk-children-mothers-ashley-st-clair-grimes-dc7ba05c


    On the Campaign Trail, Elon Musk Juggled Drugs and Family Drama

    https://www.nytimes.com/2025/05/30/us/elon-musk-drugs-children-trump.html


    Longtermism

    https://www.williammacaskill.com/longtermism


    Áhrifarík umhyggja - umfjöllun í Lestinni

    https://www.ruv.is/utvarp/spila/lestin/23619/b72p37/georg-ludviksson-um-effective-altruism


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    1 hr and 12 mins
No reviews yet