Episodes

  • Tónklippilist sem eigið listform
    Mar 22 2026

    Metnaður ungra tónlistamanna gerir tónklippilist að sjálfstæðri listgrein. Heilar plötur fara koma út

    sem eru aðeins settar saman úr brotum úr annarri tónlist. Danstónlistin kemur fram, þ.á.m. jungle,

    grein sem byggist nær öll á nokkurra sekúndna broti úr gömlu sálarlagi frá 1969 sem nefnist

    „Amen, Brother“. Lögin sem nota þetta stutta brot skipta þúsundum.

    * DJ Shadow, The Avalanches, Steinski, Amon Tobin, Coldcut, trip-hop, jungle

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    40 mins
  • Framúrstefnulist
    Mar 18 2026

    Samplerar á viðráðanlegu verði komu fram árið 1985. Samhliða hipphoppinu voru ýmsir listamenn að nota þessa nýju græju til að takast á við fjöldamenninguna og ögra með meðvituðum hætti stífum höfundarréttarlögum. Sumir þeirra hafa tengingar við myndlistarheiminn.

    * John Oswald, Illegal Art, Negativland, Christian Marclay … textatengsl, dauði höfundarins og

    fæðing [hlustandans]: Roland Barthes, Julia Kristeva

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    42 mins
  • Hipp hopp
    Mar 18 2026

    Plötusnúðar í Harlem um 1980 notuðu plötuklór og aðrar aðferðir til að lengja í tónlistinni. Þannig héldu þeir partíinu gangandi og sköpuðu grunn fyrir rappara til að kveðast á. Hipp-hoppið fæðist og sömpl mæta löngum armi laganna árið 1991.

    * Kool Herc, Grandmaster Flash, Bomb Squad / Public Enemy, Dust Brothers / Beastie Boys,

    Prince Paul / De La Soul, Biz Markie málsóknin 1991, bricolage

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    37 mins
  • Fordæmi og fyrirennarar
    Mar 18 2026

    Hugmyndin um fundin hljóð kom upp í akademískri samtímatónlist fljótlega eftir seinna stríð og kallast á við „ready-made“ hugmynd Marcels Duchamps. Verk fyrir hljómsveitir og segulband. Dúkkaði líka upp síðar í hápródúseraðri popptónlist Bítlanna og Beach Boys.

    * Musique concréte, ítalski fútúrisminn, Pierre Schaeffer, Karlheinz Stockhausen, John Cage,

    Bítlarnir, Beach Boys, ready-made, collage

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show more Show less
    35 mins